
Koppaþjálfun er stórt og mikilvægt þroskaskref í lífi barns og foreldra. Þegar barn hættir að nota bleiu og lærir að nota koppinn er það ekki aðeins að tileinka sér nýja færni, heldur stígur það skref í átt að aukinni sjálfstjórn, sjálfstæði og sjálfstrausti. Til að þetta ferli gangi sem best er mikilvægt að nálgast koppaþjálfun með skilningi á þroska barnsins, einstaklingsbundnum þörfum þess og þeim þáttum sem geta haft áhrif á árangur. Þegar ferlið er byggt á jákvæðni, fyrirsjáanleika og stuðningi aukast líkurnar á því að barnið upplifi árangur og trú á eigin getu í stað streitu eða óöryggis.
Koppaþjálfun snýst ekki eingöngu um að geta pissað eða haft hægðir í kopp. Hún felur meðal annars í sér að barnið læri að þekkja líkamleg merki, tjá þarfir sínar, bíða eftir tækifæri, fylgja rútínu og takast á við breytingar. Einnig þarf að huga að umhverfi, samskiptum, hvatningu og viðbrögðum fullorðinna í ferlinu.
Allir þátttakendur fá samantekt yfir helstu atriði námskeiðsins ásamt skráningarblaði til að fylgjast með árangri.
Einnig er boðið upp á að fá 1 klukkustund í persónulegri ráðgjöf á hálfvirði í gegnum fjarskiptabúnað eða síma eftir að námskeiði líkur.
Nánar um ráðgjöfina.
Á námskeiðinu, sem er rúmlega ein klukkustund, verður farið ítarlega yfir alla helstu þætti koppaþjálfunar, algengar áskoranir og hvernig best er að mæta þeim. Kynntar verða mismunandi aðferðir og leiðir sem foreldrar geta nýtt sér, með áherslu á lausnamiðaðar, barnvænar og jákvæðar nálganir. Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum skýran ramma, verkfæri og aukið öryggi til að styðja barnið sitt í þessu mikilvæga þroskaferli.
Katrín Björnsdóttir sér um ráðgjöfina en hún er klínískur atferlisfræðingur með grunnpróf í sálfræði. Katrín sérhæfir sig í koppa- og klósettþjálfun og veitir faglega ráðgjöf varðandi frumkvæði, næturvætu og hægðatregðu.
Við hvetjum þig til þess að athuga hvort námskeiðið sé styrkhæft hjá þínu stéttarfélagi.
,,Algjör fagmaður. Hjálpaði okkur ótrúlega mikið og á mínu heimili er talað um töfrakonuna.”
Matthías, Faðir
,,Fagmaður í sínu starfi, get heilshugar mælt með, topp þjónusta”
Sigríður, Kennari
,,Ég starfa sem sérkennslustjóri í leikskóla og hef haft ánægju af því að vinna með Katrínu við WC þjálfun barna. Þjálfunin hennar var markviss og greinilega byggð á djúpri þekkingu. Hún upplýsti bæði starfsfólk og foreldra vel um næstu skref og fylgdi barninu eftir með ráðleggingum ef afturför átti sér stað. Mesti ávinningurinn var án efa sigur barnanna sjálfra.”
Sérkennslustjóri